Loftbólu-kvóta-peningar
Ég minnist þess að hafa heyrt
Halldór Ásgrímsson,
tala fyrir landsbyggða kvóta í
fiskveiðum.
Halldóri varð ekki ágengt í því,
en margir voru á sama máli.
Ég minnist þess að aðrir töluðu
fyrtir því,
að þeir sem byggju málægt
fiskimiðunum,
ættu að geta aukið sinn kvóta,
vegna hagkvæmni nálægðarinnar.
Þeir náðu sínu fram.
Sjómenn voru hvattir af,
útgerðum,? skipstjórum,? Stýrimönnum,?
til að heimta kvótann til
sjómanna. ()
Sjómenn voru að sjálfsögðu háðir
sínum vinnuveitendum,
og var óspart beitt í þeirra þágu.
Þetta varð til þess að kvótinn
lenti til eigenda útgerðarinnar.
Eigendur útgerðanna tóku lán út á
kvótann, 100 til 1000 miljarða,*
og seldu svo útgerðina.
Þessi lán, þessir peningar voru
búnir til í bönkunum,
og voru reyndar
“loft-bólu-peningar”
eins og við segjum í dag.
Þarna voru settir, prentaðir
peningar til að setja í umferð,
en ekkert nýtt verðmæti hafði
skapast.
*Þessi tala er notuð hér en hægt
er að reikna hana út,
og færa til vergildis krónu á
hverjum tíma.
Egilsstaðir, 23.01.2011 jg