Heimskan
(Heimskr,
er sá er fátt hefur séð., hann vantar þekkingu)
Það voru ekki prentaðir peningar
til að halda fólkinu á
vinnumarkaðnum.
Þá töpuðum við þjónustunni
og vörunum
sem fólkið hefði búið til.
Einhverju sinni þegar
stjórnvöld í Bandaríkjunum,
höfðu peningaprentunina í
sínum höndum,
lentu þeir í vandræðum.
(þetta er einhversstaðar í
slóð, addressu hér hjá mér.)
Einhverjum datt í hug að ef
þeir ættu ekki gull, grafið niður í hól,
mætti ekki prenta peninga.
Það varð til þess að fólkið
stóð uppi atvinnulaust,
og hætti að framleiða vörur
og þjónustu.
Þarna höfðu aðilar gleymt
því, að það er hugur og hönd,
sem framleiðir og tilreiðir
allar vörur og vinnu.
Þessu hafa flestir gleymt í
dag.
Þarna bjó heimskan til
kreppu, skort og mikið böl.
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1258288/
Það vitlausasta sem þú
getur gert er að reka starfsfólkið úr þjónustunni ,
til dæmis á
Landsspítalanum, og senda það heim á atvinnuleysisbótum,
til að spila.
Ef þú átt einhvern mann eða
konu án atvinnu,
þá er um að gera að finna
eitthvað nytsamt
verkefni.
Að sjálfsögðu þarft þú að
láta það ganga fyrir
að framleiða mat til sjávar
og sveita,
og afla gjaldeyris til að
við getum
flutt inn nauðsynjar.
Egilsstaðir, 24.12.2012
Jónas Gunnlaugsson