Skoða
Henry Ford once said,
“It is well that the people of the nation
do not understand our banking and monetary system,
for if they did, I believe there would be a revolution
before tomorrow morning.”
***
Eitt sinn sagði
Henry Ford,
"Það
er gott að fólkið skilur ekki fjármálakerfið,
annars myndi það
strax í dag.
***
Loftpeningar
Margir tala um að mikið sé til af peningum.
Þá gleymist að peningarnir eru aðeins tala í tölvu.
Loftbólu fjármálafyrirtækin bjuggu til alla þessa loftpeninga.
Bankar og fjármálafyrirtæki búa til alla peninga, og loftpeninga.
Við gætum eytt öllum færslunum úr tölvunum, og búið þær til aftur eftir viku.
Sennilega væri best að henda gömlu færslunum, og koma með nýja krónu.
Þá ætti að henda öllu sem væri umfram 100 miljónir á fjölskyldu.
Þetta eru hvort sem er loftpeningar.
***
Hvers vegna á fólkið, þjóðin, að láta dýrmætan gjaldeyri, til að tryggja
kaupgetu loftpeninga.
Þessi gjaldeyrir fékkst fyrir útflutningsvöru, svo sem fisk, ál, og vinnu huga
og handa.
Við þurfum að hugsa þetta mjög vel.
Þessir loftpeningar sem eru að sliga peningakerfið.
***
Nú þykjast þessir fjármála loftpeningar eiga allt, hafa hirt allt af fólki og
fyrirtækjum.
Finnst þér ekkert skrítið að með vissu millibili setja bankarnir allt á fullt,
allir mega vinna, og búa til verðmæti.
Síðan tvöfalda þeir peninga magn í umferð, þá tvöfaldast verðið á öllu.
Að sjálfsögðu kemur þá verðbólga.
Þá hætta bankarnir að búa til peninga til að stöðva verðbólguna og allir verða
blankir.
Nú verða allir að selja til að greiða reikningana.
Nú er svo komið að engin getur keypt.
Þá reyna allir að selja á 50% lægra verði, en engin á peninga.
Þá segir bankinn, þú áttir 30% í íbúðarhúsinu, verslunarhúsinu og verksmiðjunni,
og það er tapað.
Nú tekur bankinn íbúðarhúsið, verslunarhúsið og verksmiðjuna til sín.
Þarna eignast bankinn allt sem aðrir höfðu smíðað eða hugsað.
Bankinn átti ekkert en er nú búin að færa allt til sín.
**
Bankarnir tóku til sín peningaprentunina.
Bankar setja allt í gang með því að prenta peninga, skrifa tölur í tölvur.
Allir hamast við að byggja upp heiminn.
Þegar bankanum sýnist að nóg sé komið af eignum, þá tekur bankinn allt til sín.
Skammast þú þín ekki að láta fara svona með þig.
Egilsstaðir, 02.12.2011
Jónas Gunnlaugsson
Skoða
Henry Ford once said,
“It is well that the people of the nation
do not understand our banking and monetary system,
for if they did, I believe there would be a revolution
before tomorrow morning.”
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-14-flettan.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-12-ardur.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-03-fjarmagn.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-10-05-Central-banks-05.htm