Fléttan
Markmiðið er og var,
Útöndun, innöndun
Allir fá “verkfæri, peninga"
lánaða frá
bönkunum til að byggja upp heiminn,
Bankinn skrifar bara tölurnar í
tölvurnar hjá sér.
Fólkið byggir borgir, verksmiðjur
og samgöngutæki, allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Mikið er búið til af rekum,
peningum, með verðbréfa og gjaldeyrisviðskiptum,
þeir peningar framleiddu
enga vöru eða þjónustu.
Þessir peningar bætast við
framleiðslu og vinnu peningana.
Og nú hefur peningamagn í umferð
margfaldast, með þessum peningum
sem skiluðu engri framleiðslu eða
þjónustu.
Þessir aukapeningar orsaka
verðbólgu.
Heimsbankinn ákveður að nú verði
að hætta að lána út peninga
til að stöðva verðbólguna.
Allir verða peningalausir og engin
getur greitt af lánunum sínum.
Allir reyna að selja til að greiða
skuldir.
Engin getur keypt, enginn á
peninga.
Við reyndum að lækka verðið á
eignunum til að við gætum selt,
en það dugði ekki, enginn hafði
peninga.
Þá kom bankinn og sagði að okkar
20% eign væri horfin,
við værum að reyna að selja á 50%
verði.
Nú tók bankinn allar eignir, það
er veðin fyrir skuldunum.
Þarna eignast bankinn allt sem
gert hafði verið,
en hafði áður aðeins skrifað
tölurnar
í tölvuna hjá sér.
Markmiðið er og var,
Hvað þarf ég að gera til að öðlast skilning?
Ég veit það.
Egilsstaðir. 14.11.2011 jg
http://www.herad.is/y04/1/2011-12-14-innstaedur--.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-12-02-loftpeningar.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-12-ardur.htm
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-03-fjarmagn.htm