Glenna
Jón og Gunna
höfðu greitt 20% af húsinu sínu,
til mín, og
áttu því 20% í húsinu.
Þá ákvað ég að
gera þeim glennu.
Ég lokaði fyrir
peningagreiðslur til þjóðanna,
bjó til skort
af peningum
Þá hefur enginn
peninga og getur ekki staðið við greiðslur sínar.
Til að reyna að
greiða útistandandi reikninga,
reyndu allir að
selja, en enginn gat keypt,
þó að reynt
væri að selja á 50% verði,
það er lækka
húsið um helming.
Þá sagði ég við
Jón og Gunnu,
nú er eign
ykkar í húsinu gufuð upp,
þið áttuð 20%,.
Nú tek ég
húsið, og öll hin húsin og verksmiðjurnar.
Nú sendi ég út
tilkynningu, að ég hafi grætt 30 milljarða í mánuðinum.
Ég framleiddi
ekkert, veitti enga gagnlega þjónustu.
Ég hafði aðeins
hirt allt sem aðrir höfðu átt, og gert.
--
Stundum sagði
ég þegar ég hafði allt í hendi mér.
Nú skal ég láta
þig fá húsið aftur með því,
að þú skuldir
mér 110% í húsinu.
Þarna lét ég
eins og ég hefði gefið upp 40% í húsinu.
En, það var ég
sem náði húsinu og allri eign þinni í því.
Þarna var
aldrei önnur eign en húsið,
og ég læt þig
greiða húsið plús 10%.
Þú greiðir 110%
þó húsið sé aðeins 100% virði.
Fyrst náði ég
20% af húsverðmætinu,
og nú áttu að
greiðahúsið allt,
100% og 10% til
viðbótar,
110%
Ég spila alltaf
á þig.
Ég spila alltaf
á þig, en skil það ekki einu sinni sjálfur.
Sjáandi sérð þú
ekki, og heyrandi heyrir þú ekki.
Get ég ef til
vill lesið mér til um þetta, ef ég vil.
Gerðir okkar
koma í veg fyrir að við getum leitað að “----“,
þú veist það.
Hvað er hér á
ferðinni.
---
Heimurinn sem
við lifum í er einhverskonar sýndarveruleiki.
Heimurinn,
lífið er eins og leikur ungdómsins í tölvunni,
við erum föst í
þessu borði, og hrökkvum alltaf til baka.
Til að komast
áfram, verðum við að læra og leita að kennslu hjá “????”
Hvað sagði
Einstein.
Allt er byggt
upp af orku, ekkert annað er til.
Allt er byggt
upp af miklu viti.
Einstein sagði
ekki, hvað er “orkan og vitið að hugsa?”
Einstein sagði,
mig langar að vita hvað Guð er að hugsa?
Ég segi, Guð er
bóndi, hann er að rækta sálir,
og til þess
skapaði hann heiminn,
að sálirnar
gætu lært í skólanum.
Heimurinn
verður til við hvert orð sem við segjum, eða hugsum.
Heimurinn
verður til við gerðir okkar.
Þetta allt er
okkur kennt í gömlum ritum.
Í upphafi var
orðið og orðið var Guð.
Stundum rífumst
við um það hvort veröldin sé sköpuð,
eða þróuð.
Getur sköpun
skapað þróun, mjög líklega. (já mannleg hugsum)
Þá erum við að segja að það að rífast um þróun eða sköpun,
er einhver
misskilningur.
(Í huga okkar er sköpun eitthvað,
sem verður til núna, í augnablikinu,
en þróun er sköpun, sem verður til
á lengri tíma.
Við vitum ekki hvað tími er.
Meira seinna.
Egilsstaðir,
01.09.2011 Jónas Gunnlaugsson