Hressum upp á mynnið
Mundu að bankakerfið er rekið
eftir reglum alþjóða bankakerfisins,
og farðu strax að kynna þér málið,
svo að þú getir lagað
peningakerfið.
Það þýðir ekkert að vera reiður,
þá skilur þú ekkert.
Reyndu frekar að spyrja,
hversvegna þú skilur ekkert.
Reyndu að athuga, lesa hvað
spekingar fyrri árþúsunda,
sögðu um hvernig fólkið héldi
skilningnum,
eða glataði skilningnum.
Spurðu spekingana í dag, ef þeir
eru til, hvernig stendur á því,
að þeir sem halda samninginn,
eignast landið, (allt)
en þeir sem svíkja, eða eru
kærulausir, glatast.
Hér gildir það sama eins og í
þróun, eða sköpun heimsins.
Vestrænar þjóðir hafa breytt
mörgum lögum þannig,
að þau samræmast ekki kenningum
spekinga
fyrri alda.
Alþingismenn, hafið þið haft
hliðsjón af hugsjónum,
bestu manna árþúsundanna.
Hafið þið lesið um gömlu gildin,
og farið eftir þeim.
Fór ekki allt að ganga á
afturfótunum,
þegar þið breyttuð reglunum,
frá gömlu gildunum.
Hvað eru það mörg hundruð
miljónir,
sem við í vestrænum þjóðfélögum,
drepum í dag, með fóstureyðingum?
Hvað drepum við marga með því að
búa til eldsneyti úr mat?
Hvað drepum við marga með því að
nota korn
sem dugar fyrir 20 manns í að búa
til hamborgara
sem dugar fyrir einn mann.
Við þurfum 20 til 30 sinnum meira
af auðlindum,
ef við borðum kjöt, heldur en ef
við borðum korn,
grænmeti, rætur, plöntusvif og
þvíumlíkt.
Þarna erum við að eyðileggja
jörðina,
með því að rækta 20 til 30 sinnum
meira
en við þurfum.
Gróður jarðarinnar er mun
náttúrulegri, en kjötið,
þar sem dýrið er í búri og sér
aldrei sólina.
Við þorum varla að horfast í augu
við gerðir okkar.
Egilsstaðir, 12.02.2011
JG