Tíu sinnum
Ég hef þá reglu að lána 10 sinnum
hvert innlán.
Ég bið vin minn að taka 10
miljarða að láni í bankanum hjá mér,
og að leggja það inn í bankann
aftur.
Ég get borgað vini mínum einhverja
smá vexti,
fyrir þetta viðvik, en ég get
alveg eins,
notað starfsfólkið í bankanum.
Nú get ég lánað 10 sinnum þessa
upphæð, 100 milljarða til Félagsins,
og allt er samkvæmt reglunum.
Þetta geri ég til að ég geti
“prentað,” búið til meiri peninga.
Þarna afhendi ég Félaginu 100
miljarða,
sem ég skulda engum.
Ég get afskrifað þessa skuld.
Ég afskrifa ekki allar skuldir.
Sá sem á mig vill að bankinn
virki.
Það að virka er að sá sem á mig
fái eignir og völd.
Allar eignir fyrirtækja og
einstaklinga færast til mín,
það er, til þess aðila, sem á mig.
Ég get látið eignirnar myndast í
Félaginu, mínu.
Ég get látið eignirnar verða eftir
í bankanum.
Þá segi ég að eigið fé bankans
hafi aukist um,
til dæmis 16 miljarða í mánuðinum.
Eg, 08.02.2011 jg