Njósnir
Það er broslegt að heyra talið um
njósnir á Íslandi í dag.
Allir sem hafa aðgang að tækni og
sérfræðingum,
geta náð öllum gögnum úr tölvum,
úr bíl í næstu götu, úr herbergi í
næstu húsum,
eða með forritum í gegn um
internetið.
Ekki er ótrúlegt að telja megi
hárin á skalla þingmanna,
úr gervihnöttum, og hvað þá að
hlusta á umræður.
Leyniþjónustur allra stærri landa
og fyrirtækja geta náð í flesta gagnagrunna,
og að ekki sé nú talað um “mafiuna”
Þeir einu sem ekkert fá að vita
eru Jón og Gunna,
enda auðvelt að féfletta þau,
eins og dæmin sanna.
Svo er að sjálfsögðu gamla
aðferðin, hún er sígild.
Það er að kitla Jón eða Gunnu, eða
bæði, eftir eðli þeirra.
Þá hefur þú gagnagrunninn á
mynnislyklinum.
Ef til vill ætti að hafa allt
opið.
Af hverju er svona nauðsynlegt
að geta platað Jón og Gunnu.
Egilsstaðir, 23.01.2011
JG